Hvað ungur nemur, gamall temur

Nú þykist ég sjá hvaðan fordæmið kemur! Óþekktarormarnir í fazmo.is hafa fundið sér fyrirmyndir í æfingasalnum í World Class. Slæmt að íþróttaálfurinn hafi ekki verið þarna á staðnum daginn sem pörupiltarnir völdu sér fyrirmynd. Líklega væru þeir þá ekki með nálaför á rassinum og takandi skapsveiflur sínar út á þægu krökkunum í einföldu röðinni á Hverfisbarnum.
Ég hef svo sem ekkert fyrir mér í því að þeir fazmóar séu á sterum, nema þessa atferlishegðun, að bera ýmsa líkamsparta í hvert skipti sem myndavél er innan 10 metra radíus, að pósa hallærislega rétt eins og þeir hefðu einhvern massa að sýna, og að lemja minni-máttar. Allt týpísk stera einkenni. Ég ætla samt að gefa þessum hrekkjusvínum smá ráð; "Það er ekki nóg að taka bara stera (ef sú er raunin), það þarf líka að æfa!"
Sumir halda að það sé nóg að mæta bara á svæðið, flexa aðeins í speglunum og fara síðan í ljós. Það virkar bara ekki þannig, Sorrý!


